Útkall: Alþjóðafulltrúi WOSM

January 29, 2026

Stjórn Bís leitar nú að nýjum alþjóðafulltrúa WOSM til tveggja ára

Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2026

“Að starfa sem Alþjóðafulltrúi fyrir BÍS síðustu fjögur árin er það skemmtilegasta og lærdónsríkasta sem ég hef gert í mínu skátastarfi. Ég hef kynnst yndislegu fólki allstaðar að úr heiminum, haft áhrif á evrópu og heimshreyfingar WOSM með því að taka til orðs og kjósa á þingum og lært svo margt af vinum okkar úr norðurlöndunum. Það er mikil vinna sem fylgir því að vera alþjóðafulltrúi en því fylgja líka ótal ævintýri. Í gegnum starfið hef ég séð píramídana í Egyptalandi, farið í bingó í Færeyjum og tekið norðurlandatrúnó í Finnskri sánu svo eitthvað sé nefnt! Það er líka gaman að fá að starfa með Alþjóðaráðinu heima, halda smiðjur um alþjóðastarf og styðja við fararhópana okkar á erlend skátamót!” segir Berglind Lilja fráfarandi alþjóðafulltrúi WOSM.


Skyldur og ábyrgð
Að sjá um samskipti vegna og fylgjast með því starfi sem fer fram á vegum evrópusviðs og heimssviðs WOSM ásamt því að vera hluti af því teymi sem sinnir sérstöku samstarfi á milli norðurlandanna á vettvangi NSK. Að vinna í samstarfi við stjórn BÍS, alþjóðaráð og Skátamiðstöðina að nýta viðburði og stuðningsefni til að efla skátastarf á Íslandi. Alþjóðafulltrúinn skal þekkja 
siðareglur og viðbragðsáætlun ÆV, forvarnarstefnu BÍS og reglugerð BÍS um utanferðir skáta


Hæfni
Reynsla af alþjóðlastarfi í skátunum er kostur. Gott vald á ensku er krafa en viðkomandi þarf að vera í miklum munnlegum og skriflegum samskiptum á tungumálinu, góð kunnátta í fleiri tungumálum er kostur, sérstaklega í tungumálum annarra norðurlanda. Alþjóðafulltrúinn þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, vera samvinnufús og góður í tengslamyndun. 


Aðbúnaður, þjálfun og stuðningur frá félagi
Alþjóðafulltrúinn fær netfang frá skátunum og microsoft aðgang. Alþjóðafulltrúi mun fyrst um sinn starfa með forvera sínum Berglindi Lilju Björnsdóttir og fá innsýn og þjálfun í starf frá henni. Alþjóðafulltrúinn mun taka þátt í næsta Scout-Academy samevrópskri foringjaþjálfun og smiðjum sem fer fram í Belgíu haustið 2026 fyrir hönd BÍS. Fær reglulegan samráðsfund með alþjóðafulltrúa WAGGGS, Egle Sipaviciute og stjórn BÍS til að fara yfir verkefnin sem snúa að alþjóðastarfi. Viðkomandi fær einkenni frá BÍS eftir þörfum. 


Sérstakar áskoranir
Þarf að að fylgjast reglulega vel með fréttabréfum og upplýsingum sem koma frá WOSM og miðla áfram til stjórnar, Skátamiðstöðvar, alþjóðaráðs og annarra sjálfboðaliða eftir því sem við á hverju sinni svo að upplýsingar komist þangað sem þær eiga að rata. Hlutverkinu fylgja talsvert af ferðalögum og fundarhaldi sem ákvarðast af tímabelti annarra landa. 


Markmið og mælikvarðar
Að BÍS starfi í takt við stefnur alþjóðahreyfinga og að verkefni á vegum alþjóðahreyfinga skili sér inn í starf skátafélaga á Íslandi. Að íslenskir skátar fái tækifæri á skátastarfi á alþjóðavettvangi. Að mynda og viðhalda tengslum við alþjóðafulltrúa WOSM frá öðrum löndum sem við eigum í samstarfi við. 



Umbun
Hlutverkið er gríðarlega gott tækifæri til persónulegs vaxtar. Viðkomandi fær tækifæri til að mynda vinskap við fólk hvaðanæva að úr heiminum. Viðkomandi fær tækifæri á að fá styrki til að ferðast til annarra landa. 


Umsókn

Nýlegar færslur
March 3, 2026
Um helgina var haldið vel heppnað fararstjóranámskeið þar sem farið var yfir allt sem þarf til að undirbúa skemmtilegt og vel heppnað Landsmót. Dagskráin var fjölbreytt og fræðandi og fengu þátttakendur góða innsýn í helstu þætti sem skipta máli við undirbúning og framkvæmd móts. Meðlimir í mótsstjórn sáu um námskeiðið. María Dýrfjörð fjallaði um grunnþarfir og velferð skáta og mikilvægi þess að skapa öruggt og styðjandi umhverfi. Ingibjörg mótsstjóri og Védís kynningarstjóri Landsmóts, ræddu um samskipti og viðbrögð í krísum. Kynnt var nýtt efni frá Svissneskum skátum sem hægt er að nota til að eiga uppbyggilegt og fyrirbyggjandi samtal í óþægilegum aðstæðum sem geta komið upp á mótinu. Andrea Dagbjört tók fyrir aðgengismál og mikilvægi þess að öll geti tekið þátt á eigin forsendum. Þá fór hún einnig yfir hlutverk Skjólsins og stuðningskjóðuna sem verður afhent öllum félögum fyrir mótið. Anna, tæknistjóri mótsins, fór yfir öryggismál í tjaldbúð og helstu atriði sem þarf að hafa í huga til að tryggja öryggi þátttakenda. Katrín Kemp kynnti viðbragðsáætlun mótsins og samstarfið við æskulýðsvettvanginn. Jóhann Malmquist dagskrárstjóri og Halldóra Hinriksdóttir fóru yfir skipulag dagskrár, skráningu í dagskrárliði og fyrirkomulag opnu dagskrárinnar.  Í lok námskeiðsins sköpuðust góðar umræður þar sem meðal annars var rætt um fyrirkomulag í fjölskyldubúðum og matinn. Að lokum voru grunnupptökur af tveimur nýjum mótslögum spiluð. Þar með lauk vel heppnuðu og uppbyggilegu námskeiði. Stefnt er á að hitta fararstjórnahópinn aftur þegar nær dregur móti á fjarfundi.
March 3, 2026
Agora er alþjóðlegur viðburður sem róverskátar skipuleggja fyrir aðra róverskáta. Viðburðurinn einkennist af því að efla alþjóðleg tengsl milli þátttakenda […]
February 26, 2026
Helgina 6.-8. febrúar útskrifuðust 9 skátar úr Gilwell leiðtogaþjálfuninni og fengu einkennin sín afhent við hátíðlega stund í Gilwell skálanum. Skátarnir eru á aldrinum 22-46 ára og koma úr 3 félögum en að þessu sinni var stór hópur frá skátafélaginu Hraunbúum að útskrifast. Hópnum var skipt í flokka í upphafi þjálfunarinnar sem héldust út alla þjálfunina og hjálpuðust að við að leysa hin ýmsu verkefni sem á vegi þeirra varð. Gilwell leiðtogaþjálfunin er fyrir fullorðna skáta sem vilja efla sig sjálf sem leiðtoga og halda áfram að leiða skátastarf í landinu. Hópurinn hefur lokið 10 daga leiðtogaþjálfun, sem er skipt í 3 hluta, og unnið að metnaðarfullu lokaverkefni. Fyrsti hluti ævintýrisins var í júní þegar tjaldbúð var reist á Úlfljótsvatni í 5 daga, næst hittist hópurinn yfir helgi í nóvember og var svo síðasti hlutinn haldinn í upphafi febrúar. Hápunktur helgarinnar var þegar skátarnir kynntu lokaverkefnin sín fyrir hópnum en þau hafa unnið að þeim allt frá fyrsta hluta í júní. Um helgina var einnig hópur af skátum sem taka þátt í framhalds Gilwell leiðtogaþjálfuninni til að fá þriðju eða fjórðu perluna sína. Framhalds Gilwell hópurinn var á annari helgi í sinni þjálfun en gert er ráð fyrir lengra ferli fyrir þau þar sem verkefnin þeirra eru stærri og þurfa að ná til skátahreyfingarinnar allrar. Stefnt er að útskrift framhalds Gilwell hópsins á komandi ári og hlökkum við til að fylgjast með þeim klára sína vegferð. Til hamingju með áfangann öll! 
February 26, 2026
Afmælisþing
February 20, 2026
Aðalfundur Útilífsmiðistöðvar skáta á Úlfljótsvatni (ÚSÚ) verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 20:00 í sal Skátamiðstöðvarinnar, Hraunbæ 123. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Samþykktir Úlfljótsvatns  6. Önnur mál Hér er hlekkur á fjarfund.

Share this article