Our Chalet – Svissnesku Alparnir

January 20, 2026

Our Chalet er ein af 5 skátamiðstöðvum WAGGGS og er staðsett í Alpaþorpinu Adelboden í Sviss.
Svæðið samanstendur af nokkrum skálum með mismunandi magni af svefnplássum og þægindum. Hægt er að gista í rúmum og vera í fullu fæði en einnig er hægt að gista í minni skálum á dýnum og koma með eigin mat, allt eftir því hversu mikið fjármagn hópurinn hefur á milli sín. Það eru mismunandi dagskrár möguleikar eftir því hvenær á árinu staðurinn er heimsóttur og það eru mismunandi erfiðleikastig í boði.



Einnig er hægt að sækja um sem tímabundin sjálfboðaliði frá 2 vikum í allt að 6 mánuði við 18 ára aldur. Það er bæði hægt að sækja um ákveðnar stöður en einnig sem almennur sjálfboðaliði þar sem viðkomandi fær tækifæri til þess að takast á við ýmis verkefni tengd rekstri og dagskrá. Öllum kynjum óháð búsetu er velkomið að sækja um stöður í Our Chalet. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Our Chalet.


Nýlegar færslur
March 3, 2026
Um helgina var haldið vel heppnað fararstjóranámskeið þar sem farið var yfir allt sem þarf til að undirbúa skemmtilegt og vel heppnað Landsmót. Dagskráin var fjölbreytt og fræðandi og fengu þátttakendur góða innsýn í helstu þætti sem skipta máli við undirbúning og framkvæmd móts. Meðlimir í mótsstjórn sáu um námskeiðið. María Dýrfjörð fjallaði um grunnþarfir og velferð skáta og mikilvægi þess að skapa öruggt og styðjandi umhverfi. Ingibjörg mótsstjóri og Védís kynningarstjóri Landsmóts, ræddu um samskipti og viðbrögð í krísum. Kynnt var nýtt efni frá Svissneskum skátum sem hægt er að nota til að eiga uppbyggilegt og fyrirbyggjandi samtal í óþægilegum aðstæðum sem geta komið upp á mótinu. Andrea Dagbjört tók fyrir aðgengismál og mikilvægi þess að öll geti tekið þátt á eigin forsendum. Þá fór hún einnig yfir hlutverk Skjólsins og stuðningskjóðuna sem verður afhent öllum félögum fyrir mótið. Anna, tæknistjóri mótsins, fór yfir öryggismál í tjaldbúð og helstu atriði sem þarf að hafa í huga til að tryggja öryggi þátttakenda. Katrín Kemp kynnti viðbragðsáætlun mótsins og samstarfið við æskulýðsvettvanginn. Jóhann Malmquist dagskrárstjóri og Halldóra Hinriksdóttir fóru yfir skipulag dagskrár, skráningu í dagskrárliði og fyrirkomulag opnu dagskrárinnar.  Í lok námskeiðsins sköpuðust góðar umræður þar sem meðal annars var rætt um fyrirkomulag í fjölskyldubúðum og matinn. Að lokum voru grunnupptökur af tveimur nýjum mótslögum spiluð. Þar með lauk vel heppnuðu og uppbyggilegu námskeiði. Stefnt er á að hitta fararstjórnahópinn aftur þegar nær dregur móti á fjarfundi.
March 3, 2026
Agora er alþjóðlegur viðburður sem róverskátar skipuleggja fyrir aðra róverskáta. Viðburðurinn einkennist af því að efla alþjóðleg tengsl milli þátttakenda […]
February 26, 2026
Helgina 6.-8. febrúar útskrifuðust 9 skátar úr Gilwell leiðtogaþjálfuninni og fengu einkennin sín afhent við hátíðlega stund í Gilwell skálanum. Skátarnir eru á aldrinum 22-46 ára og koma úr 3 félögum en að þessu sinni var stór hópur frá skátafélaginu Hraunbúum að útskrifast. Hópnum var skipt í flokka í upphafi þjálfunarinnar sem héldust út alla þjálfunina og hjálpuðust að við að leysa hin ýmsu verkefni sem á vegi þeirra varð. Gilwell leiðtogaþjálfunin er fyrir fullorðna skáta sem vilja efla sig sjálf sem leiðtoga og halda áfram að leiða skátastarf í landinu. Hópurinn hefur lokið 10 daga leiðtogaþjálfun, sem er skipt í 3 hluta, og unnið að metnaðarfullu lokaverkefni. Fyrsti hluti ævintýrisins var í júní þegar tjaldbúð var reist á Úlfljótsvatni í 5 daga, næst hittist hópurinn yfir helgi í nóvember og var svo síðasti hlutinn haldinn í upphafi febrúar. Hápunktur helgarinnar var þegar skátarnir kynntu lokaverkefnin sín fyrir hópnum en þau hafa unnið að þeim allt frá fyrsta hluta í júní. Um helgina var einnig hópur af skátum sem taka þátt í framhalds Gilwell leiðtogaþjálfuninni til að fá þriðju eða fjórðu perluna sína. Framhalds Gilwell hópurinn var á annari helgi í sinni þjálfun en gert er ráð fyrir lengra ferli fyrir þau þar sem verkefnin þeirra eru stærri og þurfa að ná til skátahreyfingarinnar allrar. Stefnt er að útskrift framhalds Gilwell hópsins á komandi ári og hlökkum við til að fylgjast með þeim klára sína vegferð. Til hamingju með áfangann öll! 
February 26, 2026
Afmælisþing
February 20, 2026
Aðalfundur Útilífsmiðistöðvar skáta á Úlfljótsvatni (ÚSÚ) verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 20:00 í sal Skátamiðstöðvarinnar, Hraunbæ 123. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Samþykktir Úlfljótsvatns  6. Önnur mál Hér er hlekkur á fjarfund.

Share this article