Kynning: Jakob Heimir
March 4, 2026
Jakob Heimir Patrick Burgel Ingvarsson
Framboð: meðstjórnandi í stjórn BÍS

Kæru skátasystkin,
Jakob Heimir Patrick Burgel Ingvarsson, heiti ég og er 27 ára bakari í Hafnafirði. Ég er fæddur og uppalinn Selfyssingur, á íslenskan föður og franska móður, og með svart belti í judo. Ef ég tel rétt er ég að klára núna 20. starfsárið minn í skátunum.
Ég byrjaði sem ylfingur í Fossbúum og starfaði þar í tæp 15 ár, þar af 9 ár sem foringi eða stjórnarmaður, eða þar til ég flutti suður í Hafnarfjörð 2021. Þar byrjaði ég að starfa hjá Hraunbúum og núna er ég starfandi deildarforingi Dróttskáta, formaður félagsráðs og nýkjörinn í stjórn félagsins. Einnig var ég starfandi sem Dagskrárforingi Vífils á árunum 2023-25. Ég kláraði Gilwell þjálfun 2023, eftir 7 ára ferðalag og er Spæta.
Önnur störf sem ég hef sinnt innan skátana eru meðal annars; heimalningur á Úlfljótsvatni, eldhúsþræll á hinum ýmsu viðburðum, kynnir á Moot2017, stýrt fleiri kvöldvökum en þeim skiptum sem ég hef haldið takti og svo margt fleira sem ég hef ekki tölu á.
Nýlegar færslur







