Gamli fær nýja kamínu

December 8, 2025

Við Gamla, skála Skátafélagsins Klakks hafa sl. haust farið fram miklar framkvæmdir, sem miða að endurbótum skálans og gera hann útilegufæran á ný. En vegna mikillar almennrar umferðar um svæðið og þess, að skálinn var alla tíð opinn fyrir gesti og gangandi var hann kominn í nokkra niðurníðslu og hafði því miður orðið fyrir barðinu á slæmri umgengni (jafnvel skemmdarverkum). En á haustdögum var ráðist í gagngerar endurbætur á skálanum, sem raunar standa enn yfir, og hefur Tumi Snær Sigurðsson haft umsjón með af þeim, ásamt vöskum rekkaskátum og öðrum skátum á öllum aldri.

Sl. sunnudag, 7. des. var þeim áfanga fagnað, að ný kamína er komin í gagnið og skálinn formlega orðinn útilegutækur. Boðið var upp á gönguferð með leiðsögn frá Hömrum upp að Gamla, þar sem boðið var upp á kakó, kex og mandarínur (í tilefni aðventunnar) og voru þar samankomnir á þriðja tug manns þegar mest var. Áttu viðstaddir þar notalega og ánægjulega stund, auk þess sem veður var með besta móti til gönguferða. Jóhann Malmquist félagsforingi hélt erindi en einnig sagði Ólafur Kjartansson frá Brunná lítillega frá framkvæmdunum við byggingu skálans á árunum 1979-81. Ólafur, jafnan kallaður Óli Kjartans, hafði einmitt veg og vanda af því að koma nýju kamínunni fyrir og málmsmíðum í kringum hana. Sagði Óli frá því, að á sínum tíma hefði allt efnið í skálann verið borið frá Kjarnaskógi eða Fálkafelli og kamínan líklega þyngst af því öllu. Nýja kamínan og annað efni til framkvæmda var hins vegar ferjað uppeftir með þyrlu nú haustdögum. Rétt er að óska hlutaðeigandi til hamingju með nýja kamínu og aðrar endurbætur á Gamla.

Nýlegar færslur
March 4, 2026
Elfa Björg Aradóttir
March 3, 2026
Um helgina var haldið vel heppnað fararstjóranámskeið þar sem farið var yfir allt sem þarf til að undirbúa skemmtilegt og vel heppnað Landsmót. Dagskráin var fjölbreytt og fræðandi og fengu þátttakendur góða innsýn í helstu þætti sem skipta máli við undirbúning og framkvæmd móts. Meðlimir í mótsstjórn sáu um námskeiðið. María Dýrfjörð fjallaði um grunnþarfir og velferð skáta og mikilvægi þess að skapa öruggt og styðjandi umhverfi. Ingibjörg mótsstjóri og Védís kynningarstjóri Landsmóts, ræddu um samskipti og viðbrögð í krísum. Kynnt var nýtt efni frá Svissneskum skátum sem hægt er að nota til að eiga uppbyggilegt og fyrirbyggjandi samtal í óþægilegum aðstæðum sem geta komið upp á mótinu. Andrea Dagbjört tók fyrir aðgengismál og mikilvægi þess að öll geti tekið þátt á eigin forsendum. Þá fór hún einnig yfir hlutverk Skjólsins og stuðningskjóðuna sem verður afhent öllum félögum fyrir mótið. Anna, tæknistjóri mótsins, fór yfir öryggismál í tjaldbúð og helstu atriði sem þarf að hafa í huga til að tryggja öryggi þátttakenda. Katrín Kemp kynnti viðbragðsáætlun mótsins og samstarfið við æskulýðsvettvanginn. Jóhann Malmquist dagskrárstjóri og Halldóra Hinriksdóttir fóru yfir skipulag dagskrár, skráningu í dagskrárliði og fyrirkomulag opnu dagskrárinnar.  Í lok námskeiðsins sköpuðust góðar umræður þar sem meðal annars var rætt um fyrirkomulag í fjölskyldubúðum og matinn. Að lokum voru grunnupptökur af tveimur nýjum mótslögum spiluð. Þar með lauk vel heppnuðu og uppbyggilegu námskeiði. Stefnt er á að hitta fararstjórnahópinn aftur þegar nær dregur móti á fjarfundi.
March 3, 2026
Agora er alþjóðlegur viðburður sem róverskátar skipuleggja fyrir aðra róverskáta. Viðburðurinn einkennist af því að efla alþjóðleg tengsl milli þátttakenda […]
February 26, 2026
Helgina 6.-8. febrúar útskrifuðust 9 skátar úr Gilwell leiðtogaþjálfuninni og fengu einkennin sín afhent við hátíðlega stund í Gilwell skálanum. Skátarnir eru á aldrinum 22-46 ára og koma úr 3 félögum en að þessu sinni var stór hópur frá skátafélaginu Hraunbúum að útskrifast. Hópnum var skipt í flokka í upphafi þjálfunarinnar sem héldust út alla þjálfunina og hjálpuðust að við að leysa hin ýmsu verkefni sem á vegi þeirra varð. Gilwell leiðtogaþjálfunin er fyrir fullorðna skáta sem vilja efla sig sjálf sem leiðtoga og halda áfram að leiða skátastarf í landinu. Hópurinn hefur lokið 10 daga leiðtogaþjálfun, sem er skipt í 3 hluta, og unnið að metnaðarfullu lokaverkefni. Fyrsti hluti ævintýrisins var í júní þegar tjaldbúð var reist á Úlfljótsvatni í 5 daga, næst hittist hópurinn yfir helgi í nóvember og var svo síðasti hlutinn haldinn í upphafi febrúar. Hápunktur helgarinnar var þegar skátarnir kynntu lokaverkefnin sín fyrir hópnum en þau hafa unnið að þeim allt frá fyrsta hluta í júní. Um helgina var einnig hópur af skátum sem taka þátt í framhalds Gilwell leiðtogaþjálfuninni til að fá þriðju eða fjórðu perluna sína. Framhalds Gilwell hópurinn var á annari helgi í sinni þjálfun en gert er ráð fyrir lengra ferli fyrir þau þar sem verkefnin þeirra eru stærri og þurfa að ná til skátahreyfingarinnar allrar. Stefnt er að útskrift framhalds Gilwell hópsins á komandi ári og hlökkum við til að fylgjast með þeim klára sína vegferð. Til hamingju með áfangann öll! 
February 26, 2026
Afmælisþing

Share this article